Dino Hodzic, hinn stóri og stæðilegi markvörður Kára á Akranesi, gerði sér lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur þegar Kári vann 1-0 sigur á ÍR í 2. deild karla.
Hann varði fyrst frá Viktori Erni Guðmundssyni á 41. mínútu og fagnaði því vel og innilega.
Viktor Örn fór aftur á punktinn á 71. mínútu en í annað skiptið í leiknum sá Hodzic við honum.
Frábær dagur á skrifstofunni hjá Dino Hodzic en það sama er ekki hægt að segja um leikinn hjá Viktori Erni sem misnotaði tvær vítaspyrnur.
Útsendingu frá leiknum má sjá hér að neðan.
Sjá einnig:
2. deild: Albert hetja Kórdrenga - Hemmi vann á afmælisdeginum
Athugasemdir