Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 11. september 2020 21:00
Aksentije Milisic
Aftur mætir Hazard of þungur til Real
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, leikamaður Real Madrid, fær að heyra það í spænskum fjölmiðlum en hann hefur mætt of þungur til æfinga hjá Real Madrid eftir frí. Það sama var uppi á teningnum fyrir síðustu leiktíð.

Hazard spilaði ekkert fyrir Belgíu í Þjóðardeildinni en hann var í leikmannahópnum samt sem áður. Það var mikil umfjöllun á síðasta ári þegar Hazard þótti vera of þungur og ljóst er að menn á Spáni eru langt því frá að vera sáttir.

Hazard kom til Real í fyrra og er hann með 400 þúsund pund á viku en hann þótti valda vonbrigðum á sínum fyrsta tímabili þar sem hann var mikið meiddur og spilað ekki nægilega vel þess á milli.

Hann skoraði einungis eitt mark fyrir félagið á síðustu leiktíð og ljóst er að þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Real Madrid en á síðasta ári viðurkenndi Hazard að hann leyfi sér mikið í matarræði þegar hann er í fríi.
Athugasemdir
banner
banner
banner