Fotbolti.net
12.01.20 - 15:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Everton að kaupa varnarmann frá Carlisle

Everton að kaupa varnarmann frá Carlisle
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Everton vill fá ungan enskan varnarmann frá Carlisle sem leikur í ensku D-deildinni.
Fyrsta tilboðinu var hafnað en von er á öðru tilboði frá Everton sem búist er við að verði samþykkt, það er Sky Sports sem greinir frá þessu.

Everton bauð fyrst 500 þúsund pund í Jarrad Branthwaite en tilboðinu var hafnað, Carlisle er talið vilja fá á bilinu 750 þúsund pund til 1 milljón punda fyrir varnarmanninn.

Southampton var einnig áhugasamt um að fá Jarrad Branthwaite í sínar raðir en þeir eru ekki tilbúnir að borga það sem Carlisle vill fá fyrir hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.