Fotbolti.net
12.01.20 - 15:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Styttist í endurkomu hjá Fabinho - Með gegn Man Utd?

Fabinho.

Fabinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Það styttist í að Fabinho snúi aftur á völlinn eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðan í nóvember.
Hann gæti snúið aftur um næstu helgi þegar Liverpool tekur á móti Manchester United á Anfield.

Fabinho sagði í samtali við Telefoot að allt væri á réttri leið.

„Þetta er allt á réttri leið, ég er búinn að ná mér af meiðslunum og farinn að æfa sér. Ég er líka aðeins farinn að æfa með bolta og er bjartsýnn á að geta snúið fljótlega aftur."

„Ég held að ég geti byrjað að spila aftur mjög fljótlega en það veltur auðvitað allt á læknateyminu," sagði Fabinho.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.