Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 12. janúar 2022 22:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sverrir spilaði í sigri - Arnór ónotaður varamaður í bikarnum
Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason spilaði allan leikinn þegar PAOK vann 2-0 sigur gegn Panaitolikos í grísku úrvalsdeildinni á þessu miðvikudagskvöldi.

Sverrir er kominn aftur á fullt eftir meiðsli og hjálpaði hann sínu liði að landa góðum sigri í kvöld.

PAOK er eftir þennan sigur í þriðja sæti grísku úrvalsdeildarinnar, 11 stigum á eftir toppliði Olympiakos.

Arnór ónotaður varamaður
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson kom ekki við sögu þegar Venezia tapaði gegn Atalanta í ítölsku bikarkeppninni. Arnór er á láni hjá Venezia frá CSKA en hann hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá ítalska úrvalsdeildarfélaginu á tímabilinu.

Kolbeinn byrjaði í æfingaleik
Vinstri bakvörðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson spilaði í gær æfingaleik þegar varalið Borussia Dortmund vann 4-0 sigur gegn Alemannia Aachen. Kolbeinn spilaði klukkutíma í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner