Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 12. febrúar 2021 16:15
Magnús Már Einarsson
Geðveikur fótbolti með FC Sækó
Mynd: KSÍ
KSÍ hefur ákveðið að ganga formlega til samstarfs við knattspyrnufélagið FC Sækó. Um er að ræða vitundarátak undir heitinu "Geðveikur fótbolti með FC Sækó" sem hefst í vor og mun standa til vors 2022.

Knattspyrnuverkefnið FC Sækó "Geðveikur fótbolti“ byrjaði í nóvember 2011 sem samstarfsverkefni Hlutverkaseturs, Velferðarsviðs Reykjavíkur og geðsviðs Landspítalans. FC Sækó knattspyrnufélag var stofnað árið 2014 og er það skipað notendum geð- og velferðarkerfisins, starfsmönnum þess og öðrum sem hafa áhuga á að styðja við verkefnið.

Tilgangur FC Sækó er að efla og auka virkni notendahóps fólks með geðraskanir og gefa þeim tækifæri til að iðka knattspyrnu sem og að draga úr fordómum.

Markmið FC Sækó er fyrst og fremst að efla andlega og líkamlega heilsu fólks, vera sýnileg og hafa gaman. Á æfingum eða í leikjum eru allir jafnir og þannig styðjum við hvort annað og drögum við úr fordómum. Það eru allir velkomnir að æfa og/eða spila með FC Sækó, konur og karlar, fólk sem tengist geð- eða velferðarsviði og/eða úrræðum því tengdu eða aðrir.

Hlutverk KSÍ í samstarfinu verður að vekja athygli á og styðja við starfsemi FC Sækó með ýmsum hætti og að vekja athygli á því hvernig þátttaka í fótbolta (eða skipulögðum íþróttum almennt) getur haft jákvæð áhrif á líðan einstaklinga með geðraskanir.

Facebook síða FC Sækó
Athugasemdir
banner
banner