Harry Kane skoraði tvö mörk í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þegar Tottenham sigraði Aston Villa á laugardaginn, 3-1.
Hann segir að Tottenham verði að gera betur í ár svo að liðið nái að halda í við Liverpool og Manchester City.
„Það tókst ágætlega hjá okkur framan af móti á síðustu leiktíð en í janúar byrjuðu liðin að stinga af," sagði Kane.
„Það er mikilvægt fyrir okkur að byrja mótið vel og ég er sáttur með fyrsta leikinn. Liverpool setti viðmið á föstudaginn og City gerði síðan enn betur á laugardag.
Hann segist hafa trú á því að liðið geti farið alla leið.
„Við höfum allir trú en svo að það gæti gerst þurfum við allir að róa í sömu átt og vera einbeittir," sagði Kane að lokum.
Athugasemdir