Fotbolti.net
12.08.24 - 15:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sjáðu hvers vegna Arnar fékk rauða spjaldið í gær

Arnar með þjálfaramöppuna.

Arnar með þjálfaramöppuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull, stuðningsmaður Breiðabliks, birti í dag tvö myndbönd á samfélagsmiðlinum X sem sýna viðbrögð Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, áður en hann fékk að líta rauða spjaldið frá dómara leiksins í gær, Vilhjálmi Alvari Þórarinssynu.

Arnar gengur að fjórða dómara leiksins, Arnari Inga Ingvarssyni, og grýtir þjálfaramöppu sinni í jörðina í bræði. Hann grýtir henni svo aftur í jörðina skömmu síðar.

Arnar var ósáttur að ekkert brot var dæmt þegar Sveinn Gísli Þorkelsson fór niður eftir að Gunnar Jónas Hauksson renndi sér. Leikurinn hélt áfram og upp úr þeirri sókn Vestra skoraði Gunnar Jónas jöfnunarmark Vestra.

Í viðtölum eftir leik var Arnar svo mjög ósáttur við að Eiður Aron Sigurbjörnsson hefði ekki fengið rauða spjaldið fyrir atvik sem átti sér stað fyrr í leiknum. Viðtal hans við Fótbolta.net má sjá í spilaranum neðst.

Arnar fékk rauða spjaldið fyrir hegðun sína og er á leið í leikbann fyrir rauða spjaldið, að minnsta kosti tveggja leikja bann þar sem um annað rauða spjald hans í sumar er að ræða.
Arnar Gunnlaugs: Ég held að þeir séu ekkert að fylgjast með leiknum
TENGT EFNI

Arnar Gunnlaugs: Ég held að þeir séu ekkert að fylgjast með leiknum

Sjáðu hvers vegna Arnar fékk rauða spjaldið í gær
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sjáðu hvers vegna Arnar fékk rauða spjaldið í gær
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugs: Ég held að þeir séu ekkert að fylgjast með leiknum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.