Spænska úrvalsdeildin fer af stað í dag með þremur leikjum.
Klukkan 14 er opnunarleikurinn en þar mætast Eibar og Celta Vigo. Klukkan 16:30 fær Granda Atletic Bilbao í heimsókn og í kvöldleiknum fá nýliðarnir í Cadiz lið Osasuna í heimsókn.
Barcelona og Real Madrid áttu að spila í dag en leikjunum hjá þessum tveimur liðum hefur verið frestað þar til síðar.
Real Madrid hefur titil að verja en liðið var óstöðvandi í deildinni eftir að tímabilið fór aftur af stað eftir stopp.
Laugardagur:
14:00 Eibar - Celta
16:30 Granada CF - Athletic
19:00 Cadiz - Osasuna
Athugasemdir