Liverpool gæti nýtt sér ákvæði í samningi Semenyo- Ungur miðjumaður á blaði hjá Liverpool og Man Utd - West Ham vill Strand Larsen
   fim 13. febrúar 2020 17:00
Elvar Geir Magnússon
Gervinho kominn úr skammarkróknum
Fílabeinsstrendingurinn Gervinho er farinn aftur að æfa með liðsfélögum sínum í Parma en liðið mætir Sassuolo í ítölsku A-deildinni um helgina.

Þessi 32 ára sóknarmaður hefur ekki verið í leikmannahópi Parma síðan hann reyndi að komast frá félaginu í janúarglugganum og mætti ekki á æfingar í þrjá daga.

Hann vildi komast til Al-Sadd í Katar.

Gervinho hefur beðist afsökunar á hegðun sinni og var þeirri afsökunarbeiðni vel tekið hjá Parma.

Parma er í níunda sæti í ítölsku A-deildinni og er í baráttu um Evrópusæti. Liðið er aðeins tveimur stigum frá sjötta sætinu.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 15 11 0 4 34 14 +20 33
2 Milan 15 9 5 1 24 13 +11 32
3 Napoli 15 10 1 4 22 13 +9 31
4 Roma 16 10 0 6 17 10 +7 30
5 Juventus 16 8 5 3 21 15 +6 29
6 Bologna 15 7 4 4 23 13 +10 25
7 Como 15 6 6 3 19 12 +7 24
8 Lazio 16 6 5 5 17 11 +6 23
9 Sassuolo 15 6 3 6 21 19 +2 21
10 Cremonese 16 5 6 5 18 18 0 21
11 Udinese 15 6 3 6 16 22 -6 21
12 Atalanta 15 4 7 4 19 18 +1 19
13 Torino 15 4 5 6 15 26 -11 17
14 Lecce 15 4 4 7 11 19 -8 16
15 Cagliari 15 3 5 7 15 21 -6 14
16 Genoa 15 3 5 7 16 23 -7 14
17 Parma 15 3 5 7 10 18 -8 14
18 Verona 15 2 6 7 13 22 -9 12
19 Pisa 15 1 7 7 10 20 -10 10
20 Fiorentina 15 0 6 9 12 26 -14 6
Athugasemdir
banner