Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. febrúar 2021 07:00
Aksentije Milisic
AC Milan reynir að kaupa Diaz frá Real
Mynd: Getty Images
Hinn 21 árs gamli Brahim Diaz hefur staðið sig vel á láni hjá AC Milan á þessari leiktíð og nú ætlar félagið að reyna að kaupa leikmaninn frá Real Madrid.

Milan er ekki með forkaupsréttindi á leikmanninum en félagið ætlar hins vegar að reyna ræða við Real Madrid og ganga frá kaupum á Diaz.

Draumur Diaz er að spila með Real Madrid en ekki er ljóst hvort hann sé í plönum félagsins og nú þurfa félögin tvö að ræða saman og komast að niðurstöðu.

Diaz hefur spilað 25 leiki fyrir Milan á þessar leiktíð og skorað fjögur mörk. Hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner