13.03.21 - 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Talið að Tindall stýri Sheffield United með Heckingbottom

Jason Tindall.

Mynd: Getty Images

Jason Tindall.

Mynd: Getty Images
Jason Tindall, fyrrum stjóri Bournemouth, mun stýra Sheffield United út leiktíðina að því er kemur fram hjá <a href="https://talksport.com/football/848899/jason-tindall-bournemouth-sheffield-united-chris-wilder-departure/" target="_blank">Talksport</a>.
Tindall mun koma inn hjá Sheffield United og stýra liðinu út leiktíðina ásamt Paul Heckingbottom.
Alan Knill, sem hefur verið aðstoðarmaður Chris Wilder, verður einnig áfram hjá félaginu.
Talið er að Sheffield United muni tilkynna um brottrekstur Wilder í kvöld.
Sheffied United situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar og er á leið niður um deild en framtíð Wilder hefur verið til umræðu undanfarnar vikur. Wilder og Abdullah bin Musa'ad bin Abdulaziz Al Saud, eigandi Sheffield United, eru ósammála um framtíðarstefnu félagsins.
Hinn 53 ára gamli Wilder tók við Sheffield United árið 2016 og kom liðinu upp úr C-deildinni í ensku úrvalsdeildina á þremur árum.
Tindall var aðstoðarmaður Eddie Howe hjá frá 2008 til 2012 og hann tók svo við Bournemouth fyrir þetta tímabil. Það var ekki langt ævintýri hjá honum þar sem hann var rekinn eftir aðeins sex mánuði í starfi.