Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 13. ágúst 2020 17:00
Aksentije Milisic
Bild: Liverpool sett sig í samband við Bayern Munchen varðandi Thiago
Mynd: Sjónvarp Símans
Samkvæmt þýska miðlinum Bild, þá hefur Liverpool sett sig í samband við Bayern Munchen um hugsanleg kaup á miðjumanninum Thiago Alcantara.

Liverpool hefur mikið verið orðað við leikmanninn á undanförnum dögum og nú hefur liðið sett sig í samband við Bayern.

Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur tilkynnt Bayern það að hann ætli sér ekki að framlengja samning sinn við félagið. Samningur hans rennur út á næsta ári.

Þar sem leikmaðurinn er á sínu lokaári á samningnum og vill fara, þá hefur Liverpool ákveðið að láta til skarar skríða, samkvæmt Bild. Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vill kaupa Thiago en það er enn langt í land með að liðin nái samkomulagi.

Bayern vill fá 30 milljónir punda fyrir Thiago sem kom til Bayern árið 2013 frá Barcelona.


Athugasemdir
banner
banner
banner