Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. janúar 2023 12:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ferdinand við Lescott: Þið eruð með betra lið
Mynd: EPA

Rio Ferdinand fyrrum varnarmaður Manchester United yrði sáttur með jafntefli í grannslagnum í dag. Það sagði hann í léttu spjalli við Joleon Lescott fyrrum varnarmann City.


Þeir verða með umfjöllunina í kringum leikinn hjá BT Sport en Lescott birti myndband á Twitter í morgun þar sem hann ræddi við Ferdinand.

„Ég ætla segja 2-2, ég yrði ánægður með það. Ég er bara raunsær. Þið eruð með betra lið, ég vona bara að við fáum eitthvað út úr þessu, látið mig bara fá einhver stig," sagði Ferdinand.

Ferdinand er með hlaðvarpsþátt sem kallast Vibe with Five en Lescott verður gestur þáttarins á mánudaginn.

„Ef við vinnum ekki gæti svo farið að ég mæti ekki í þáttinn," sagði Ferdinand.


Athugasemdir
banner
banner