Manchester Evening News segir að James Maddison sé búinn að ákveða að vilji sinn sé að fara til Manchester United í sumar.
Maddison er með nýtt samningstilboð frá Leicester í höndunum en hann er einn launahæsti leikmaður félagsins.
Maddison er með nýtt samningstilboð frá Leicester í höndunum en hann er einn launahæsti leikmaður félagsins.
Þrátt fyrir að vera með gott tilboð þá er sagt að Maddison vilji fara á Old Trafford.
Manchester United vill fá leikstjórnanda í sumar og sögusagnir um að Maddison sé efstur á blaði. Einnig vill United fá Jack Grealish, leikmann Aston Villa.
Stefna United ku vera að fá að minnsta kosti þrjá nýja leikmenn inn í sumar.
Maddison hefur leikið lykilhlutverk hjá Leicester síðan hann kom frá Norwich fyrir 24 milljónir punda 2018. Liðið er sem stendur í þriðja sæti.
Sjá einnig:
Kemur Maddison til varnar eftir myndir á djamminu
Athugasemdir