Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 14. febrúar 2021 16:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Braut Diagne á Lindelöf í fyrsta markinu?
Mynd: Getty Images
Manchester United missteig sig er liðið heimsótti fallbaráttulið West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Nýliðar West Brom tóku forystuna snemma leiks þegar Mbaye Diagne skoraði en sóknarmaðurinn fékk nokkur dauðafæri til viðbótar án þess að koma knettinum í netið.

Þegar mark Diagne er endurskoðað virðist sóknarmaðurinn brjóta nokkuð augljóslega á Victor Lindelöf, miðverði Man Utd, í aðdragandanum.

Diagne setur höndina sína yfir augu Lindelöf svo hann sér ekki boltann sem er á leið inn í teiginn. Diagne klárar í kjölfarið með skalla framhjá David de Gea.

Atvikið sést greinilega í síðustu endursýningunni í myndbandinu hér fyrir neðan.

Sjáðu markið.

Sjáðu annað færi Diagne sem De Gea varði. Brot í aðdragandanum?
Athugasemdir
banner
banner
banner