Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 14. maí 2022 07:00
Victor Pálsson
Antonio reynir ekki að sannfæra Rice
Mynd: EPA

Michail Antonio, leikmaður West Ham, hefur ekki reynt að sannfæra Declan Rice um að halda áfram að spila með félaginu.


Rice er á óskalista margra liða á Englandi en Manchester United og Chelsea eru sterklega orðuð við leikmanninn.

West Ham mun reyna að gera allt til að halda sínum besta leikmanni en Antonio mun ekki aðstoða félagið í að sannfæra liðsfélaga sinn.

Antonio segir að Rice sé enn ekki nálægt sínu besta og vill að hann taki ákvörðun sem hann sjálfur er ánægður með.

„Dec er ekki nálægt sínu besta ennþá, hann er ótrúlegur. Hann á svo mikið inni en það sem hann gerir núna gerir hann að einum besta leikmanni úrvalsdeildarinnar, bestu deild heims," sagði Antonio.

„Það sem gerist, gerist. Ég nýt þess að spila með honum, allir vilja spila með þeim bestu og ég væri til í að spila með honum eins lengi og hægt er."

„Ég reyni ekki að sannfæra neinn um að gera eitthvað, ég vil að hann sé ánægður svo hvað sem hann ákveður að gera þá verð ég ánægður fyrir hans hönd. Þetta er hans ákvörðun."


Athugasemdir
banner
banner
banner