Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. júní 2022 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aguerd í læknisskoðun hjá West Ham
Mynd: EPA
West Ham er að ganga frá kaupunum á Nayef Aguerd sem er leikmaður Rennes í Frakklandi.

Aguerd er marokkóskur landsliðsmaður og er hann á leið í læknisskoðun í vikunni.

Talið er að West Ham greiði Rennes um 20 milljónir punda fyrir leikmanninn. Aguerd er 26 ára gamall varnarmaður og kom til Rennes frá Dijon fyrir 5 milljónir evra fyrir tveimur árum.

West Ham er þá áfram í viðræðum við Alphonse Areola um að ganga í raðir félagsins en hann var á láni hjá West Ham frá PSG í vetur. West Ham hefur möguleika á að virkja kaupákvæði í lánssamningnum.

Verðmiðinn á Areola er talinn vera um 11 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner