Fotbolti.net
14.08.18 - 20:50
Aron Elvar Finnsson

Binni Gests: Þeir tóku bara einhvern tiki-taka bolta og virtust ekkert hafa fyrir því

Auglýsing
Binni Gests: Þeir tóku bara einhvern tiki-taka bolta og virtust ekkert hafa fyrir því
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara slakt, lélegir í dag, svona meirihlutann af leiknum,“ sagði Brynjar Þór Gestsson þjálfari ÍR eftir 5-2 tap gegn Þór í Inkasso deildinni í kvöld.
„Þetta voru bara full auðveld mörk sem þeir voru að skora. Fara beint í gegnum okkur, það var náttúrlega bara slakt. Þeir svona herjuðu vel á okkur fyrstu 20, við lifðum það vel af og þá hefði maður vilja sjá menn stíga bara betur upp í staðinn fyrir að fá mark í andlitið.“



„Það vantaði bara smá grimmd og menn svosem vita það alveg og vissu fyrir leikinn að þeir þurfa að koma grimmir inn í þetta, sérstaklega hérna. Við vorum kannski svona full soft. Ágætis karkater þarna í seinni hálfleik að rífa sig upp úr því og það er eitthvað sem er gaman að sjá.“



Þeir Alvaro Montejo og Nacho Gil í liði Þórs voru lang bestu menn vallarins í dag og skoruðu tvö mörk hvor.

„Þeir voru bara að ná vel saman og eru bara drullu góðir í fótbolta. Þeir voru náttúrlega bara að fara í gegnum okkur miðja, það skipti engu máli hvað við vorum með marga menn fyrir aftan boltann, þeir einhvernveginn bara þríhyrninguðu sig í gegn, tóku bara einhvern tiki-taka bolta þarna og virtust ekkert hafa fyrir því. Því miður. 



Viðtalið við Binna má sjá í heild sinni hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.