Fotbolti.net
14.09.21 - 19:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Svíþjóð: Böðvar fékk gult spjald í svekkjandi jafntefli

Böðvar hér fyrir miðju.

Böðvar hér fyrir miðju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Vinstri bakvörðurinn Böðvar Böðvarsson var í byrjunarliði Helsingborg og spilaði allan leikinn í svekkjandi jafntefli gegn Trelleborg í kvöld.
Það gerðist ekki mikið markvert í fyrri hálfleik og var staðan markalaus að honum loknum.

Þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma tók Helsingborg forystuna Benjamin Acquah skoraði.

Helsingborg virtist vera að sigla sigrinum heim en rétt áður en uppbótartíminn hófst, þá skoraði Mattias Håkansson og jafnaði metin fyrir Trelleborg.

Afar svekkjandi fyrir Helsingborg, sem er á toppnum í sænsku B-deildinni með 36 stig eftir 20 leiki. Böðvar spilaði allan leikinn í dag og fékk gult spjald í seinni hálfleiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.