Fotbolti.net
14.09.22 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Þjóðsöngurinn spilaður fyrir leiki helgarinnar

Þjóðsöngurinn spilaður fyrir leiki helgarinnar
Canon

Mynd: Getty Images

Þjóðsöngur Bretlands verður leikinn fyrir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, til minningar um Elísabetu Englandsdrottningu sem féll frá í síðustu viku.

Öllum fótboltaleikjum síðustu helgar var aflýst en enska úrvalsdeildin fer aftur af stað um helgina.

Hér má sjá hvaða leikir verða spilaðir um helgina.
'God Save the King' verður spilað á úrvalsdeildarvöllum, mínútuþögn fyrir leiki og stjórar eru hvattir til að klæðast jakkafötum. Einnig verður mínútu klapp á 70. mínútu en drottningin ríkti í 70 ár.

Þá hafa stjórar verið beðnir um að leiða liðin út á völlinn.

Spurningamerki hefur verið sett við það að úrvalsdeildin frestaði leikjum um síðustu helgi á meðan keppt var í öðrum íþróttum, til dæmis krikket og ruðningi.

<b>Enski boltinn</b> - Norðrið gegn suðrinu í stjörnuleik

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.