Fotbolti.net
14.12.19 - 19:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Nuno: Mourinho er einn sá besti

Nuno: Mourinho er einn sá besti
Canon

Mynd: Getty Images

Það fer fram flottur leikur í ensku úrvalsdeildinni á morgun þegar Wolves tekur á móti Tottenham.
Nuno Espirito Santo lék undir stjórn Jose Mourinho hjá Porto á sínum tíma, hann er í dag stjóri Úlfanna og Mourinho stjóri Tottenham.

Nuno talaði vel um sinn fyrrum stjóra í viðtali sem birtist á heimasíðu Wolves.

„Hann er frábær í sínu starfi, einn sá besti í fótboltanum í dag. Það verður ánægjulegt að bjóða hann velkominn á Molineux. Ég þarf ekki að segja mikið meira en það, hann hefur gert frábæra hluti sem knattspyrnustjóri."

Flautað verður til leiks í Wolves og Tottenham klukkan 14:00 á morgun, sunnudag.

Sjá einnig: Mourinho: Santo er betri þjálfari en hann var sem leikmaður
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.