Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. janúar 2020 22:33
Aksentije Milisic
Mata um miðann: Þetta var listi yfir matarinnkaup
Mynd: Getty Images
Juan Mata var hetja Manchester United í kvöld þegar liðið lagði Wolves að velli í FA bikarnum á Old Trafford. Mata skaut United áfram með snyrtilegu marki eftir sendingu frá Anthony Martial.

Mata var ánægður með sigurinn og þá tjáði hann sig um miðann sem Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, lét hann fá í fyrri hálfleik.

„Það var mjög erfitt að brjóta þá á bak aftur, þetta eru góð úrslit fyrir okkur. Sem betur fer náði ég að skora, engin rangstaða og ekkert VAR í þetta skipti", sagði Mata.

„Við höfðum ekki unnið Wolves í fimm síðustu tilraunum. Það sýnir hversu góðir þeir eru, þeir eru með frábæra leikmenn. Við unnum þá loksins og sýndum að við getum barist við öll lið."

Mata fékk miða frá Ole í fyrri hálfleik og var hann spurður út í hann.

„Þetta var listi yfir matarinnkaup. Brauð, mjólk og allir þessir hlutir," sagði Mata léttur að lokum.


Athugasemdir
banner