Jan Vertonghen gekk í raðir Tottenham árið 2012 frá Ajax í Hollandi. Þessi 32 ára varnarmaður gæti verið á förum frá Tottenham næsta sumar.
Samningur Vertonghen rennur út í sumar og hefur Belginn ekki viljað staðfesta áframhaldandi veru hjá Spurs.
Samningur Vertonghen rennur út í sumar og hefur Belginn ekki viljað staðfesta áframhaldandi veru hjá Spurs.
Hann var spurður út í framhaldið í viðtali á dögunum: „Mín tilfinning er sú að hvað sem ég segi muni hafa áhrif í aðra hvora áttina, mér finnst því best að sleppa því að svara," sagði Vertonghen.
„Ég er ánægður maður. Ég elska strákana hér. Lífið er gott í London og ég spila fyrir frábært félag. Það er allt sem ég vil segja," sagði Vertonghen að lokum.
Athugasemdir