Fotbolti.net
15.02.21 - 21:45
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Bayern gerði jafntefli við nýliðana í sex marka leik

David Alaba, Alphonso Davies og Kingsley Coman fagna marki Davies í leiknum

David Alaba, Alphonso Davies og Kingsley Coman fagna marki Davies í leiknum

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Bayern 3 - 3 Arminia Bielefeld</b>
0-1 Michel Vlap ('9 )
0-2 Amos Pieper ('37 )
1-2 Robert Lewandowski ('48 )
1-3 Christian Gebauer ('49 )
2-3 Corentin Tolisso ('57 )
3-3 Alphonso Davies ('69 )
Þýskalandsmeistarar Bayern München gerðu 3-3 jafntefli við nýliðana í Arminia Bielefeld í kvöld en Arminia komst í stöðuna 3-1 áður en heimamenn björguðu sér frá niðurlægingu.

Michel Vlap skoraði í fyrstu sókn gestanna á 9. mínútu en Vlap skoraði með laglegu skoti í vinstra hornið. Óverjandi fyrir Manuel Neuer í markinu.

Bayern var töluvert betra liðið í leiknum en Stefan Ortega varði vel í leiknum. Á 37. mínútu komst Arminia í 2-0 með marki frá Amos Pieper. Staðan 2-0 fyrir Arminia í hálfleik.

Robert Lewandowski minnkaði muninn í byrjun síðari hálfleiks eftir sendingu frá David Alaba en Christian Gebauer svaraði með því að gera þriðja mark Arminia. Bayern tók sig saman í andlitinu og skoraði tvö mörk á tólf mínútna kafla.

Corentin Tolisso minnkaði muninn í 3-2 á 57. mínútu með skalla áður en kanadíski vinstri bakvörðurinn Alphonso Davies jafnaði metin tólf mínútum síðar með þrumuskoti.

Bayern reyndi og reyndi en tókst ekki að knýja fram sigur og lokatölur því 3-3. Bayern er á toppnum með 49 stig, fimm stigum meira en Leipzig sem er í öðru sæti en Arminia er í 16. sæti með 18 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Dortmund4+712
2Bayern4+1210
3Freiburg4+910
4Augsburg4+57
5Leverkusen4+57
6Mainz4+47
7Elversberg4+17
8Werder407
9RB Leipzig4+46
10Frankfurt4-15
11Schalke 044-15
12Paderborn4-24
13Köln4-34
14Hoffenheim4-33
15Stuttgart4-33
16Hamburger4-113
17Union Berlin4-131
18Gladbach4-100
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.