Leiknir 4 - 1 Haukar
1-0 Sólon Breki Leifsson
1-1 Markaskorara vantar
2-1 Daníel Finns Matthíasson
3-1 Daníel Finns Matthíasson
4-1 Vuk Oskar Dimitrijevic
1-0 Sólon Breki Leifsson
1-1 Markaskorara vantar
2-1 Daníel Finns Matthíasson
3-1 Daníel Finns Matthíasson
4-1 Vuk Oskar Dimitrijevic
Leiknir og Haukar mættust í æfingaleik á Leiknisvelli í gær. Leiknir hafnaði í 3. sæti 1. deildarinnar í fyrra en Haukar féllu úr deildinni.
Leiknir leiddi í hálfleik 1-0 en Haukar jöfnuðu með fallegu marki beint úr aukaspyrnu í seinni hálfleiknum.
En Leiknir svaraði með þremur mörkum, Daníel Finns Matthíasson skoraði tvívegis.
Miðjumaðurinn Brynjar Hlöðversson lék í fyrsta sinn fyrir Leikni eftir endurkomuna í Breiðholtið en hann var lykilmaður hjá færeyska liðinu HB síðustu tvö ár.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir