Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. febrúar 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Liverpool mætir Leipzig í Búdapest
Liverpool mætir Leipzig
Liverpool mætir Leipzig
Mynd: Getty Images
16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast í kvöld en RB Leipzig mætir Liverpool á meðan Barcelona tekur á móti Paris Saint-Germain á Nou Camp.

Leipzig spilar heimaleik sinn á Puskás-leikvanginum í Búdapest í Ungverjalandi en leikmönnum Liverpool var ekki heimilað að fljúga til Þýskalands vegna kórónaveirunnar.

Gengi Liverpool í byrjun árs hefur verið afar slakt en Jürgen Klopp, stjóri liðsins, vonast til að leikmenn nái að hrista það af sér fyrir leikinn í kvöld.

Barcelona tekur þá á móti Paris Saint-Germain á Nou Camp. PSG verður án Neymar í leiknum en hann verður frá næstu vikurnar. Eitt helsta skotmark PSG fyrir sumarið, Lionel Messi, verður væntanlega með Börsungum.

Leikir dagsins:
20:00 RB Leipzig - Liverpool
20:00 Barcelona - Paris Saint Germain
Athugasemdir
banner
banner
banner