Fotbolti.net
16.05.19 - 12:53
Elvar Geir Magnússon

Sævar Péturs: Hvenær kemur VAR í Max?

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA.

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Hvenær kemur VAR í Max? Þetta er aukaspyrna rétt fyrir utan teig...," skrifaði Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, á Twitter.

Hann birtir þar skjáskot þar sem sýnt er frá atviki þar sem Ívar Orri Kristjánsson dómari dæmdi aukaspyrnu í tapi KA gegn Breiðabliki í gærkvöldi.

Ívar dæmdi Davíð Ingvarsson brotlegan gegn Hrannari Birni Steingrímssyni en taldi að brotið hefði byrjað utan teigs.

KA-menn vildu meina að um vítaspyrnu hefði verið að ræða. Atvikið átti sér stað á 40. mínútu leiksins.

Sjá einnig:
Kiddi Jak vongóður um að VAR verði í íslensku deildinni
Sævar er spurður á Twitter hvort aðstoðardómarinn sem var þarna megin á vellinum hefði ekki átt að sjá þetta?

„Jú eða hafa pung í að ræða við dómarann sem hann gerði ekki," svaraði Sævar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.