Fotbolti.net
16.07.21 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vilja meina að Willian hafi verið í þyngingarvesti

Willian á æfingunni í gær.

Willian á æfingunni í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Willian virkaði nokkrum kílóum þyngri en vanalega þegar hann lék æfingaleik með Arsenal gegn Hibernian í vikunni.

Við fréttina má sjá mynd af honum á æfingu í gær og mynd úr leiknum má sjá hér neðst.

Einhverjir stuðningsmenn Arsenal vilja meina að Willian hafi verið í þyngingarvesti undir treyjunni. Segjast þeir hafa séð Willian fara úr vestinu í hálfleik og fara aftur í það eftir leik þegar hann skokkaði sig niður eftir leik.
Arsenal tapaði leiknum gegn Hibernian 2-1.

Willian vakti enga stormandi lukku sem leikmaður Arsenal í fyrra en hann kom til Arsenal frá Chelsea fyrir síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.