Kasper Schmeichel, markvörður Leicester og danska landsliðsins, hefur verið í stuði undanfarnar vikur en hann átti meðal annars magnaðar markvörslur þegar Danmörk lagði Sviss 1-0 um síðustu helgi.
Kasper segist hafa bætt í æfingar síðasta hálfa árið og það hafi skilað sér í því að hann hafi misst tíu kíló.
Kasper segist hafa bætt í æfingar síðasta hálfa árið og það hafi skilað sér í því að hann hafi misst tíu kíló.
„Það er ekkert leyndarmál að ég hef verið að létta mig," sagði Schmeichel.
„Leyndarmálið er einfalt. Ég er orðinn aðeins eldri og er byrjaður að æfa aðeins öðruvísi."
„Ég er 32 ára og það er mikilvægt að fylgjast með líkamanum eins vel og mögulegt er. Í augnablikinu eru æfingarnar mínar betri en áður."
Athugasemdir