Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 17. janúar 2020 15:45
Fótbolti.net
Andri Rúnar skoraði í æfingaleik
Andri Rúnar Bjarnason.
Andri Rúnar Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason skoraði kraftmikið mark fyrir þýska C-deildarliðið Kaiserslautern þegar það vann 5-0 stórsigur á MTK Budapest frá Ungverjalandi í æfingaleik.

Íslendingavaktin greinir frá.

Staðan í hálfleik var 3-0 fyrir Kaiserslautern en Andri skoraði fjórða markið.

C-deildin í Þýskalandi er um þessar mundir í vetrarfríi en deildin fer aft­ur af stað þann 27. janúar. Kaiserslautern er í 9. sæti deildarinnar af 20 liðum eftir 20 umferðir.

Andri Rúnar hefur verið mikið frá vegna meiðsla á tímabilinu en er búinn að skora eitt mark í 10 leikjum í öllum keppnum með Kaiserslautern.
Athugasemdir
banner
banner