Möguleiki er á að línurnar á Laugardalsvelli verði rauðar á litinn en ekki hvítar þegar Rúmenía kemur í heimsókn í umspili fyrir EM þann 26. mars næstkomandi.
Unnið er að því hörðum höndum að hafa völlinn í sem bestu ásigkomulagi fyrir leikinn.
Meðal annars er möguleiki á að rauðar línur verði málaðar í völlinn í staðinn fyrir hvítar ef von verður á snjókomu á leikdegi.

„Við erum búnir að panta rauða málningu," sagði Kristinn Jóhannsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli, á kynningu í dag.
Sjá einnig:
Það sem er gert til að hafa Laugardalsvöll kláran 26. mars
Athugasemdir