Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 17. mars 2021 17:15
Magnús Már Einarsson
Gibbs á leið til Inter Miami
Kieran Gibbs, vinstri bakvörður WBA, er á leið til Inter Miami í MLS-deildinni.

Hinn 31 árs gamli Gibbs mun ganga í raðir Inter Miami þegar samningur hans hjá WBA rennur út í sumar.

Gibbs er launahæsti leikmaður WBA í dag með 70 þúsund pund á viku og félagið ætlar ekki að framlengja við hann.

Gibbs, sem er fyrrum leikmaður Arsenal, mun gera tveggja og hálfs árs samning við Inter Miami.

Inter Miami er nýtt félag í MLS-deildinni en það er í eigu David Beckham.
Athugasemdir
banner