Lazio á Ítalíu hefur sett sig í samband við umboðsmann bakvarðarins Patrick van Aanholt.
Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Lazio hefur áhuga á að fá þennan öfluga leikmann frítt.
Hollendingurinn hefur ákveðið að yfirgefa lið Crystal Palace og verður samningslaus í lok mánaðar.
Tyrknensku liðin Galatasaray og Fenerbahce vilja einnig fá Van Aanholt sem leikur með Hollandi á EM.
Samkvæmt Sky mun Van Aanholt taka sér tíma í að ákveða og útilokar ekki að spila áfram á Englandi.
Athugasemdir