Það er Steypustöðin sem færir þér úrvalslið hverrar umferðar í Bestu deild kvenna. Núna er komið að úrvalsliði níundu umferðar.
Breiðablik á fjóra fulltrúa í liðinu eftir stórgóðan útisigur á Þrótti, 0-3. Hildur Antonsdóttir gerði tvö mörk og voru Birta Georgsdóttir og Karitas Tómasdóttir einnig mjög öflugar. Ásmundur Arnarsson er þjálfari umferðarinnar eftir sigur í toppbaráttuslag.
Þá vann Keflavík magnaðan sigur á Stjörnunni. Markvörðurinn Samantha Murphy átti enn einn stórleikinn og voru þeir Kristrún Ýr Hólm og Elín Helena Karlsdóttir öflugar í vörninni.
Valur er á toppnum eftir sigur á Selfossi; þar voru Anna Rakel Pétursdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir öflugar í liði Vals.
Ásdís Karen er í liði umferðarinnar í fjórða sinn í sumar!
Olga Sevcova, leikmaður ÍBV, í liðið í þriðja sinn eftir frammistöðu sína í sigri á Aftureldingu og eru þær Andrea Mist Pálsdóttir og Marcy Barberic báðar í liðinu í fyrsta sinn eftir að hafa átt góðan leik í sex marka jafntefli Þórs/KA og KR.
Tíunda umferðin hefst strax á morgun.
Sjá einnig:
Sterkasta lið 1. umferðar
Sterkasta lið 2. umferðar
Sterkasta lið 3. umferðar
Sterkasta lið 4. umferðar
Sterkasta lið 5. umferðar
Sterkasta lið 6. umferðar
Sterkasta lið 7. umferðar
Sterkasta lið 8. umferðar
Athugasemdir