Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 17. nóvember 2020 15:10
Magnús Már Einarsson
Ali Daei viss um að Ronaldo bæti markamet sitt
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Ali Daei, fyrrum framherji Íran, segir að það yrði heiður ef Cristiano Ronaldo myndi jafna eða bæta markamet hans.

Daie er markahæsti landsliðsmaður sögunnar með 109 mörk en Ronaldo er sjö mörkum frá því að jafna markamet hans.

„Það yrði ekki sárt, Það yrði mikill heiður fyrir mig ef leikmaður í hans klassa myndi gera þetta," sagði Daei.

„Ég myndi óska honum beint til hamingju en fyrst verður hann að ná þessu. Cristiano er kominn með 102 mörk fyrir Portúgal og ég er viss um að hann muni bæta metið mitt en hann á ennþá sjö mörk eftir."

Markahæstu landsliðsmenn sögunnar
1. Ali Daei (Iran) - 109 mörk í 149 leikjum
2. Cristiano Ronaldo (Portúgal) - 102 mörk í 169 leikjum
3. Mokhtar Dahari (Malasía) - 88 mörk í 131 leikjum
4. Ferenc Puskas (Ungverjaland) - 84 mörk í 85 leikjum
5. Godfrey Chitalu (Sambía) - 79 mörk í 111 leikjum
6. Hussein Saeed (Írak) - 78 mörk í 137 leikjum
7. Pele (Brasilía) - 77 mörk í 92 leikjum
Athugasemdir
banner