Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. nóvember 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Veggmyndin af Ronaldo rifin niður
Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo hefur líklega spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United eftir að portúgalska stórstjarnan lét allt flakka í ítarlegu viðtali við Piers Morgan á dögunum. Fyrri hluti viðtalsins var birtur í fjölmiðlum í gærkvöldi og verður sá seinni birtur í kvöld.


Í dag vildi svo skemmtilega til að risastór veggmynd af Ronaldo var fjarlægð af Old Trafford, aðeins þremur dögum eftir viðtalið umdeilda, en Sky segir tímasetninguna ekki tengjast þessu viðtali.

Það var löngu búið að ákveða að skipta um veggmynd fyrir úrslitaleik HM í rúgbý sem fer fram á Old Trafford á laugardaginn.

Það eru þó litlar sem engar líkur á því að gamla veggmyndin muni snúa aftur, en David Beckham og Bryan Robson voru með honum á myndinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner