Sergio Aguero, framherji Manchester City, virðist vera á útleið frá félaginu en samningur hans rennur út í sumar.
Aguero er sagður við spila áfram í ensku úrvalsdeildinni, þó hann yfirgefi City.
Hann hefur ekki átt í neinum samningsviðræðum við City um nýjan samning en sagt er að Barcelona hafi haft samband við umboðsmann hans um að koma til liðsins á frjálsri sölu.
PSG og Chelsea eru einnig að fylgjast með hinum 32 ára gamla Aguero sem hefur spilað mjög lítið á þessari leiktíð fyrir City. Hann hefur verið meiddur og verið á bekknum.
Aguero, sem er markahæsti leikmaður í sögu City, hefur náð að byrja einungis fimm leiki á þessari leiktíð. Hann hefur orðið fyrir vonbrigðum með það hversu fá tækifæri hann hefur fengið síðan hann varð heill heilsu í janúar mánuði.
Athugasemdir