Fotbolti.net
18.03.21 - 14:33
Magnús Már Einarsson

Lallana fór á núllpunkt eftir að hafa smitast

Lallana fór á núllpunkt eftir að hafa smitast
Canon

Mynd: Getty

Adam Lallana, miðjumaður Brighton, segist vera að nálgast aftur fyrra form eftir að hann greindist með kórónuveiruna í byrjun árs.

Lallana var frá keppni í þrjár vikur í janúar meðan hann var í einangrun og hann segir það hafa tekið tíma ðaðkomast aftur í sitt besta form.
„Ég var rúmliggjandi í viku og var síðan í einangrun í íbúð minni í tvær og hálfa viku. Þetta gerði gjörsamlega út af við mig," sagði Lallana.

„Ég hef neyðst til að byrja aftur frá byrjun. Þegar það er ekki tímabil í gangi þá er það aldrei þannig að ég æfi ekkert."

„Þetta var eins og að byrja algjörlega upp á nýtt og það tekur tíma. Ég finn samt að ég er að komast aftur í mitt besta form."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.