fim 18. mars 2021 23:25
Victor Pálsson
Solskjær: Öll lið myndu sakna Paul Pogba
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, gat brosað í kvöld eftir 1-0 sigur á AC Milan í Evrópudeildinni.

Paul Pogba skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik til að tryggja Man Utd samanlagðan 2-1 sigur.

Solskjær og félagar eru nú komnir í 8-liða úrslit keppninnar og verður næsta umferð jafnvel erfiðari.

„Ég er auðvitað mjög ánægður. Við erum komnir áfram úr erfiðri viðureign gegn frábæru liði," sagði Solskjær.

„Þú gefur þér möguleika á að vinna með því að halda hreinu. Dean Henderson varði frábærlega undir lokin og ég ánægður með varnarvinnua allra leikmann."

„Það eru mörg góð lið eftir, þetta er útsláttarkeppni og allt getur gerst. Við erum komnir áfram og höfum mikla trú."

„Við höfum saknað Paul Pogba. Hann hefur verið frá í næstum tvo mánuði og öll lið myndu sakna svona leikmanns. Hann gerir mikinn gæfumun fyrir okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner