Fotbolti.net
18.04.25 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson

Amorim ætlar að leyfa ungu leikmönnunum að spila

Amorim ætlar að leyfa ungu leikmönnunum að spila
Canon

Mynd: EPA

Rúben Amorim var mjög hress eftir ótrúlegan fótboltaleik í gærkvöldi þar sem Manchester United tókst með ótrúlegum hætti að tryggja sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.
Rauðu djöflarnir leiddu 2-0 gegn Lyon á Old Trafford, en gestirnir frá Frakklandi náðu að jafna í seinni hálfleik og knýja leikinn í framlengingu. Það voru aðeins tíu leikmenn Lyon eftir á vellinum þegar komið var í framlengingu, en þeim tókst þrátt fyrir það að skora tvö mörk.

Staðan var því orðin 2-4 fyrir tíu leikmenn Lyon þegar Rauðu djöflarnir skiptu um gír og tókst að skora þrjú mörk til viðbótar í framlengingunni. Lokatölur urðu því 5-4 fyrir Man Utd eftir sögulegan fótboltaleik.

Miðvörðurinn stóri Harry Maguire spilaði sem fremsti sóknarmaður United í framlengingunni og var stórhættulegur þangað til hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

„Við settum Harry Maguire upp á topp því hann er eini leikmaðurinn okkar sem getur skorað með skalla," sagði Amorim meðal annars eftir sigurinn í gærkvöldi.

„Við þurfum að taka áhættur í úrvalsdeildinni, við munum nota ungu leikmennina þar og hvíla hina fyrir Evrópudeildina. Við verðum að leggja allt púður í þessa keppni."

Man Utd tekur á móti Wolves á sunnudaginn og heimsækir svo Bournemouth viku síðar. Fyrri undanúrslitaleikur Evrópudeildarinnar gegn Athletic Bilbao fer fram 1. maí og seinni leikurinn 8. maí.
Amorim ætlar að leyfa ungu leikmönnunum að spila
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.