Fotbolti.net
18.05.18 - 22:44
Þórhallur Valur Benónýsson

Brynjar: Leikurinn er í 90 mínútur

Auglýsing
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK var að vonum léttur eftir 3-1 sigur sinna manna á Selfyssingum í Kórnum í kvöld.

„Síðasti hálftíminn var góður, fyrsta klukkutímann var þetta stöðug barátta inni á vellinum og hvorugt liðið gaf færi á sér. Þetta opnaðist svo þegar við skoruðum fyrsta og annað markið, við hefðum auðveldlega getað bætt við.\"
Hafsteinn Briem, leikmaður HK fór meiddur út af vellinum eftir 20 mínútna leik. Brynjar er hræddur um að meiðslin séu alvarleg.

„Við fyrstu sýn lítur þetta ekkert sérstaklega vel út en við svosem getum sagt voða lítið fyrr en hann er búinn að sjá lækni og fara í myndatöku. Við metum það bara eftir það.\"

Hann sagðist ekki hafa viljað spila leikinn öðruvísi ef hann fengi að byrja upp á nýtt.

„Ég er sáttur með hvernig þetta fór fram, leikurinn er í 90 mínútur. Þetta er hvort sem það er hér eða annarsstaðar, þá er þetta stöðug barátta allstaðar á vellinum. Þetta er bara spurning um að halda einbeitingu og þá færðu þín tækifæri.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.