Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 18. júní 2021 08:30
Victor Pálsson
De Boer: Við getum unnið hvern sem er
Mynd: EPA
Holland er með gæðin til að vinna öll liðin á EM að sögn þjálfara liðsins, Frank de Boer.

Holland vann Austurríki 2-0 í riðlakeppninni í gær og er komið í 16-liða úrslit eftir 3-2 sigur á Úkraínu í fyrstu umferð.

De Boer hefur fulla trú á sínum strákum sem voru nokkuð sannfærandi í gær.

„Það eru ennþá hlutir sem við getum lagað og við sýndum kannski öðruvísi gæði í dag," sagði De Boer.

„Við gátum gert mun betur með boltann en vorum mun betri varnarlega en gegn Úkraínu."

„Ég vil ekki tala um sigurstranglegustu liðin. Við gerum okkar besta og vitum að þegar við spilum okkar leik þá getum við unnið hvern sem er."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner