Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 18. júní 2021 21:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Souness: Fótboltinn ekki á leið heim með þetta lið
Mynd: Getty Images
England og Skotland gerðu markalaust jafntefli í heldur bragðdaufum leik á EM í dag.

Graeme Souness einn af spekingunum á ITV var harðorður í garð enska liðsins og þá sérstaklega framherja liðsins, Harry Kane.

„Hann er leikmaðurinn í þessu liði sem hefur sannað sig sem markaskorari á þessu stigi. Ef hann skorar ekki mikið í þessari keppni kemstu ekki langt."

„Liðið komst þetta langt í Rússlandi vegna þess að Kane var að skora mörkin. Kane er ekki að standa sig og það er risa stórt vandamál. Ég get sagt þér það að fótboltinn er ekki að koma heim með þessu liði, ekki eins og þeir eru að spila."

England mætir Tékkum í loka leik riðilsins 22. júní.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner