Fotbolti.net
18.07.18 - 08:15
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Þrándheimi
Í samstarfi við styrktaraðila

Birkir Már: Verða fljótt pirraðir ef við náum að loka á þá

Auglýsing
Birkir á æfingu í gær.

Birkir á æfingu í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

„Mér sýnist menn vera tilbúnir í verkefnið og gíraðir upp í þetta,\" sagði Birkir Már Sævarsson, varnarmaður Vals, eftir æfingu í Þrándheimi.

Í dag klukkan 17:45 að íslenskum tíma mætast Rosenborg og Valur öðru sinni í forkeppni Meistaradeildarinnar. Valur vann fyrri leikinn á Hlíðarenda 1-0.
Þó Rosenborg sé eitt stærsta lið Skandinavíu þá óttast Valsmenn mótherja sína ekkert.

„Það er engin ástæða til að vera hræddur í fótbolta, þetta er það skemmtilegasta sem við gerum. Að fá að spila í Evrópukeppni með Val er algjörlega frábært,\" segir Birkir.

„Ef við spilum okkar leik og náum að loka eins vel á þá og við gerðum heima á Hlíðarenda þá held ég að þeir verði fljótt pirraðir og baul muni heyrast úr stúkunni. Það er svaka pressa á þeim og ef við vinnum okkar vinna gætu þeir pirrast.\"

„Hjá Rosenborg er það talið mislukkað tímabil ef menn komast ekki í Evrópukeppni. Það verður hellings pressa á þeim að vinna litla Val frá Íslandi.\"

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en leikurinn verður í beinni textalýsingu frá Þrándheimi hér á Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.