Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Íslands, fékk nýtt hlutverk á æfingu liðsins í gær.
Hún brá sér í hlutverk ljósmyndara og tók nokkrar myndir á meðan æfingunni stóð.
Cecilía er ekki fyrsti leikmaður Íslands sem stígur í þetta hlutverk á mótinu.
Cecilía, sem er 18 ára gömul, puttabrotnaði fyrir fyrsta leik og hefur því ekki getað tekið þátt á mótinu. Hún hefur verið í kringum liðið samt sem áður og er það mikilvæg reynsla fyrir hana.
Ísland spilar í dag við Frakkland í lokaleik sínum í riðlakeppninni á EM. Íslenska liðið er með örlögin í höndum sér og fer áfram með sigri.
Athugasemdir