18.08.26 - 09:35
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 19. umferðar - Óttalaus í sínum aðgerðum

Bergvin Fannar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Axel Freyr Harðarson lék Ægismenn grátt.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Snær Ingason er í sjöunda sinn í úrvalsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bergvin Fannar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Spennan magnast í Lengjudeildinni en 19. umferð var leikin á heilu bretti í gærkvöldi.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Bergvin Fannar Helgason - ÍR
Bergvin Fannar var gríðarlega öflugur fyrir ÍR-inga í óvæntum 3-1 sigri gegn Njarðvíkingum sem höfðu verið á flugi. Bergvin var ótrúlega öflugur í loftinu og vann hvert skallaeinvígið á fætur öðru. Alveg óttalaus í sínum aðgerðum hvort sem það var þegar hann keyrði á varnarmenn, eins og í fyrsta markinu, eða þegar hann var í baráttunni við Eið Aron í loftinu. Góð frammistaða hjá honum í dag og vel að þessum titli kominn.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Bergvin Fannar Helgason - ÍR
Bergvin Fannar var gríðarlega öflugur fyrir ÍR-inga í óvæntum 3-1 sigri gegn Njarðvíkingum sem höfðu verið á flugi. Bergvin var ótrúlega öflugur í loftinu og vann hvert skallaeinvígið á fætur öðru. Alveg óttalaus í sínum aðgerðum hvort sem það var þegar hann keyrði á varnarmenn, eins og í fyrsta markinu, eða þegar hann var í baráttunni við Eið Aron í loftinu. Góð frammistaða hjá honum í dag og vel að þessum titli kominn.

Óliver Andri Einarsson lagði upp tvö mörk fyrir ÍR-inga í þessum mikilvæga sigri og er einnig í liði umferðarinnar.
Eftir brösótt gengi að undanförnu vann Þróttur 3-1 sigur á Fylki þar sem Aron Snær Ingason var meðal markaskorara og var besti maður vallarins. Sigurður Egill Lárusson skoraði frábært mark í leiknum og Hlynur Þórhallsson var flottur í vörninni. Sigurvin Ólafsson er þjálfari umferðarinnar en Þróttarar komust á toppinn.
Þróttur er með stigi meira en Afturelding sem á leik til góða en Mosfellingar gerðu 2-2 jafntefli gegn HK. Ólafur Örn Ásgeirsson markvörður HK var maður leiksins en hann varði víti og átti margar stórar vörslur.
Völsungur heldur áfram á sigurbraut en tekst ekki að koma sér úr fallsæti þar sem önnur úrslit eru liðinu óhagstæð. Inigo Albizuri skoraði fyrra markið og var maður leiksins i 2-0 sigri gegn Vestra. Xabi Cardenas átti frábæran leik á miðjunni.
Ægismenn eru fallnir eftir 6-1 tap gegn Leikni. Axel Freyr Harðarson skoraði þrennu í leiknum, Daði Bærings Halldórsson og Anton Fannar Kjartansson voru líka meðal markaskorara Breiðhyltinga.
Fyrri úrvalslið:
18. umferð - Valdimar Jóhannsson - Njarðvík
17. umferð - Birnir Breki Burknason - Leiknir
16. umferð - Aron Snær Ingason - Þróttur
15. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

Axel Freyr Harðarson lék Ægismenn grátt.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Snær Ingason er í sjöunda sinn í úrvalsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 19 | +21 | 37 |
| 2 | Afturelding | 18 | +22 | 36 |
| 3 | Fylkir | 19 | +7 | 34 |
| 4 | HK | 19 | +9 | 32 |
| 5 | Njarðvík | 19 | +6 | 32 |
| 6 | Grótta | 18 | +1 | 27 |
| 7 | Leiknir R. | 19 | +2 | 25 |
| 8 | Vestri | 19 | -11 | 24 |
| 9 | ÍR | 19 | -7 | 22 |
| 10 | Grindavík | 19 | -6 | 21 |
| 11 | Völsungur | 19 | -12 | 20 |
| 12 | Ægir | 19 | -32 | 8 |
