Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 18. september 2022 18:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gattuso hundsaði óskir Cavani: Hann verður að spila
Mynd: EPA

Edinson Cavani gekk til liðs við Valencia í sumar en hann lék sinn fyrsta leik í gær.


Leiknum lauk með 3-0 sigri Valencia gegn Celta Vigo en Cavani komst ekki á blað. Hann var í byrjunarliðinu og lék rúmar 70 mínútur.

Gennaro Gattuso stjóri Valencia greindi frá því að Cavani hafi aðeins viljað spila hálftíma í leiknum.

„Hann hefur æft mjög vel  með okkur í tíu daga. Til að vera í sem besta forminu þarf hann að spila og spila og spila. Hann var ekki viss hvort hann ætti að byrja svona upp á formið en ég er mjög ánægur," sagði Gattuso.

Nú er landsleikjahrina framundan en Gattuso er ánægður að Cavani geti þá einbeitt sér að því að komast í betra form.


Athugasemdir
banner
banner