Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 18. október 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Wesley átti tvö börn 16 ára: Staðráðinn í að verða atvinnumaður
Wesley fagnar marki.
Wesley fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Wesley, framherji Aston Villa, segist hafa verið staðráðinn í að verða atvinnumaður í fótbolta þegar hann var orðinn tveggja barna faðir 16 ára gamall. Wesley kom til Aston Villa frá Club Brugge í sumar og hefur skorað fjögur mörk í átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni hingað til.

„Ég átti mitt fyrsta barn þegar ég var 14 ára. Það var erfitt því á þessum tíma var ég að reyna að ná að verða atvinnumaður í fótbolta. Ég varð að vinna á daginn og fara á æfingar á kvöldin," sagði Wesley.

Annað barn Wesley fæddist þegar hann var 16 ára og þá lagði hann ennþá meira í sölurnar til að verða atvinnumaður í fótbolta.

„Þegar ég átti börnin mín þá sagði ég við sjálfan mig að ég yrði að gera allt sem ég gæti til að verða fótboltamaður," sagði Wesley.

Wesley stoppaði við á Spáni, Slóvakíu og Belgíu á leið sinni til Aston Villa en í greininni hér að neðan má lesa meira um feril hans.

Sjá einnig:
Áhugaverð saga dýrasta leikmanns Aston Villa - Tveggja barna faðir 16 ára (22. júlí)
Athugasemdir
banner
banner
banner