Orkun Kökcu, leikmaður Benfica, segir að Arne Slot sé besti stjóri í heimi en Kökcu hefur verið orðaður við Liverpool.
Þeir þekkjast vel en Kökcu gekk ungur að árum til Feyenoord og var undir stjórn Slot en hann gekk til liðs við Benfica í fyrra.
Hann var besti leikmaður hollensku deildarinnar á síðasta tímabili þegar liðið varð meistari og fór alla leið í úrslit Sambandsdeildarinnar.
„Arne Slot er eins og faðir minn. Hann gerði mig að þeim manni sem ég er. Hann er besti stjóri í heimi," sagði Kökcu.
„Þegar hann tók við sprakk ég út. Við komumst í úrslit Sambandsdeildarinnar en töpuðum því miður. Ég vildi fara um sumarið, einhver félög í topp sex á Englandi höfðu áhuga," sagði Kökcu.
„Við ræddum brottför alvarlega en ekkert varð úr því á síðustu stundu. Tímabilið á eftir gerði Slot mig að fyrirliða og sú ábyrgð bætti frammistöðuna mína enn frekar."